14.1.2007 | 19:15
Þennan dag fyrir 6 árum - jarðskjálfti upp á 7.6 í El Salvador
Þann 13. janúar 2001 skók jarðskjálfti upp á 7.6 á Richter El Salvador og Guatemala. Upptök jarðskjálftans var um 100 km SV af San Salvador, höfuðborg Guatemala. Jarðskjálftinn varði í um 40 sekúndur og fannst í mest allri mið-Ameríku.
Jarðskjálftinn átti sér stað kl. 17:35 að íslenskum tíma eða 11:35 að staðartíma. Í fyrstu voru fréttir af jarðskjálftanum mjög óljósar og umfang hans ekki þekkt. Eftir því sem leið á daginn fóru að berast fréttir um hrundar byggingar og miklar aurskriður.
Fjölmörg ríki hófu því að undirbúa að senda rústabjörgunarsveitir á vettvang. Þess á meðal var Ísland, sem setti Íslensku Alþjóðabjörgunarsveitina í viðbragðsstöðu. Rústabjörgunarteymi frá Kólumbíu, Guatemala, Hondúras, Frakklandi, Mexíkó, Panama, Spán, Tyrklandi og Venúsuela fóru á vettvang. Sameinuðu Þjóðirnar virkjuðu einnig allar sínar stofnanir á svæðinu og eins var sendur hópur sérfræðinga til þess að samhæfa aðgerðir alþjóðasamfélagsins á vettvangi.
Eftir að hafa haft samráð við SÞ og önnur lönd var ákveðið að bjóða ekki fram Íslensku Alþjóðabjörgunarsveitina í þetta sinn, þar sem sá tími sem tæki að koma henni á vettvang væri það langur að leitarstarf yrði að öllum líkindum að ljúka þegar hún kæmist á leiðarenda. Þetta reyndist hárrétt ákvörðun, því strax þann 15. janúar komu skilaboð frá El Salvador um að ekki væri þörf á fleiri alþjóðlegum sveitum. Ein helsta ástæða þess að leitarferlið var svona stutt var sú að flestir sem létust höfðu lennt í aurskriðum. Aurskriðurnar voru mjög þéttar og því lítið um súrefni í þeim. Síðasta manneskjan sem fannst á lífi eftir skjálftann fannst einmitt að morgni 15. janúar.
Þegar hreinsunarstarfi lauk voru alls 844 manns látnir, tæplega 3 þúsund slasaðir og rúmlega 1 milljón manns sem á einn eða annan hátt varð fyrir áhrifum af jarðskjálftunum. Mánuði seinna reið 20 sekúnda langur jarðskjálfti upp á 6.1 á Richter yfir sama svæði. 315 manns létust í þeim skjálfta.
El Salvador er ekki óvant því að fá sterka jarðskjálfta. Þeir koma að meðaltali á 20-30 ára fresti.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Þegar neyðin er stærst...
Færsluflokkar
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.